Súpur

Bryggjusúpa  (Rúnar Marvinsson) (Frá Ragnheiði).

 

Súpan var að þessu sinni höfð í forrétt fyrir fjóra.

 

250gr þorskur eða annar ferskur fiskur

150 gr sveppir

2 laukar

3 hvítlauksrif

2 lárviðarlauf

1 grein af fersku garðablóðbergi

1 msk karrí

4 dl fisksoð (sjá bls 33)

2 dl rjómi

2 dl hvítvín

Salt

Pipar

Fínt skorin súra, t.d. túnsúra eða Ólafssúra

Loðnu-eða laxahrogn

 

Svissið í potti lauk, sveppi og karrí ásamt öllu kryddinu. Hellið soðinu yfir og sjóðið upp.
 Bætið út í rjóma og víni. Saltið og piprið. Skerið fiskinn niður,
leggið í heitar skálar og hellið súpu yfir.
Að lokum má setja yfir teskeið af hrognum og fínt saxaðri súru.

 

Fiskurinn soðnar einfaldlega á disknum þegar heitri súpu er hellt yfir hann
rétt áður en hann er borinn fram.

                                                                                                                

Flettingar í dag: 183
Gestir í dag: 51
Flettingar í gær: 613
Gestir í gær: 98
Samtals flettingar: 817600
Samtals gestir: 103701
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 14:26:05

Húsmæðraskólinn á Laugum ´68-´69

Um:

Halló, velkomin á vefsíðu skólasystra frá húsmæðraskólanum á Laugum veturinn ´68-´69. Við komum alls staðar að af landinu og höfum haldið góðu sambandi í þessi rúm 40 ár sem liðin eru síðan við útskrifuðumst. Fyrst hittumst við á 5 ára fresti, en frá árinu 2004 höfum við hist árlega og þá á mismunandi stöðum á landinu. Erum ákveðnar í að halda því áfram svo lengi sem við tórum :) Hér fyrir ofan er gestabók og gaman væri að heyra aðeins frá þeim sem heimsækja síðuna okkar. Við ætlum að vera duglegar að setja inn myndir og blogga smávegis.

Uppáhalds bíómynd(ir):

Á hverfanda hveli

Eftirminnilegast:

Veturinn ´68-´69.

Húsóhittingur

eftir

3 mánuði

14 daga

Eurovision í Baku í Azerbaijan

eftir

9 daga

clockhere

Tenglar